Íslendingar kjósa innlenda framleiðslu

Fjórir af hverjum fimm landsmönnum vilja að allar eða flestar landbúnaðarvörur á íslenskum matvælamarkaði séu framleiddar innanlands.

Tæplega 80% landsmanna vilja að landbúnaðarvörur séu framleiddar innanlands, fremur en að þær séu fluttar hingað inn. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem var framkvæmd af Gallup fyrir Bændasamtök Íslands (BÍ) og Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) í nóvember 2024. Þegar rýnt er nánar í niðurstöðurnar kemur fram að 19,9% svarenda telji að það ætti að framleiða ALLAR landbúnaðarvörur innanlands, meðan 59,7% telji að framleiða ætti þær FLESTAR innanlands.  

Á síðasta ári framleiddu íslenskir bændur rúmlega 30.000 tonn af kjöti, 12.000 tonn af grænmeti og 157 milljón lítra af mjólk. Framleiðslan fer fram á um 3.000 býlum hringinn í kringum landið og mikill fjöldi fólks kemur að framleiðslu, vinnslu, flutningi og sölu og framreiðslu matvæla til neytenda. Til þess að landsmenn allir geti kosið íslenskar landbúnaðarvörur í sínum matarinnkaupum þarf að auka innlenda framleiðslu með bættum stuðningi og betra starfsumhverfi fyrir greinina.

,,Ljóst er að Íslendingar vilja íslenska matvöru þegar þeir hafa kost á henni, og telja að íslenskir bændur og matvælaframleiðendur eigi að sjá þjóðinni fyrir landbúnaðarvörum. Almenningur vill greinilega ekki þurfa að reiða sig um of á innflutning. Þetta eru skýr skilaboð frá fólkinu í landinu. Til að íslenskar landbúnaðarvörur verði áfram raunverulegur
valkostur þarf öfluga innlenda framleiðslu og starfsumhverfi sem tekur tillit til sérstöðu hennar. Þannig gerum við greininni best kleift að vaxa áfram og dafna,” segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.

Fjöldi svarenda var 889 og svarhlutfall 93%.