Verndarráðstöfunum bætt við tollalög

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt til að bæta verndarráðstöfunum við viðskiptavarnir Íslands. Með þeim er stjórnvöldum gert mögulegt að bregðast tiltölulega skjótt við með tímabundinni tollvernd þegar innflutningur eykst svo skyndilega og í svo miklum mæli að ógnað geti innlendri framleiðslu vegna ófyrirséðrar þróunar. Um er að ræða þriðju stoð viðskiptavarna og tímabundið úrræði sem hægt er að beita án þess að til þurfi að koma mat á ósanngjörnum viðskiptaháttum, líkt og á við um undirboðstolla eða mat á styrkjum annarra ríkja til innlendrar framleiðslu, líkt og á við um jöfnunartolla. Grundvallarmarkmið verndarráðstafana er að veita innlendum framleiðendum svigrúm til að aðlagast breyttum markaðsaðstæðum með tímabundinni tollavernd við ákveðnar og ófyrirséðar kringumstæður.

"Við styðjum þessar breytingar heils hugar enda mikilvægt að sambærilegar heimildir séu fyrir hendi hér og þekkjast í löndunum í kringum okkur. Tilvist slíkra heimilda eykur öryggi íslenskrar matvælaframleiðslu, enda geta stjórnvöld þá brugðist skjótt við breyttum aðstæðum sem stefna innlendri framleiðslu í hættu." segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.

Krafan um ófyrirséða þróun felur í sér að fyrir liggi óvænt ytri atvik eða alþjóðleg þróun sem leitt hafi til hins aukna innflutnings sem ógnar eða veldur innlendri framleiðslu skaða. Aukinn innflutningur getur einn og sér ekki talist ófyrirséð þróun. Þá er skilyrði að vara sé flutt inn í svo auknum mæli og við slíkar aðstæður að valdið geti innlendum framleiðendum skaða. Hér er ekki átt við þegar innflutningur hefur náttúrlega og eðlilega leitað upp á við heldur er um að ræða greinilega aukinn innflutning vöru á tiltölulega skömmum tíma sem valdið getur innlendum framleiðendum skaða eða hefur þegar skaðað þá.

Bráðabirgðaákvæði búvörulaga framlengt

Samhliða þessari breytingu er lagt til að bráðabirgðaákvæða í búvörulögum sem varða tollkvóta á grænmeti verði framlengt um eitt ár. SAFL hafa áður tjáð sig um þá tillögu og styðja hana nú sem fyrr. Þó leggja samtökin til að kartöflur verði undanskildar, enda framboð innanlands metið nægjanlegt.

"Umrætt bráðabirgðaákvæði var sett í lok árs 2021 í kjölfar þess að úthlutun svokallaðra opinna tollkvóta var lögð af. Við þá breytingu varð regluverkið skýrara, en á sama tíma ósveigjanlegra. Þetta ákvæði átti upphaflega einungis að gilda í eitt ár en hefur verið framlengt á hverju ári síðan. Við höfum því lagt það til og ítrekum nú að rétt sé að núverandi regluverk verði endurskoðað með framtíðarfyrirkomulag að markmiði." segir Margrét.

Hér er hægt að nálgast umsögn SAFL í heild sinni.