Mikilvægt er að ráðast í endurskoðun á regluverki í kringum tollatímabil útiræktaðs grænmetis með framtíðarfyrirkomulag að markmiði. Þetta kemur fram í umsögn SAFL um framlengingu bráðabirgðaákvæðis í búvörulögum sem kveður á um tímabil sem afmarka lægri innflutningstolla á tilteknar tegundir grænmetis.
Í byrjun árs 2020 tóku gildi breytingar á búvöruIögum sem snúa að úthlutun tollkvóta. Fyrir breytingarnar var að störfum ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara, sem hafði m.a. það hlutverk að leggja til við ráðherra að úthluta svokölluðum ,,opnum tollkvótum" þegar framboð ákveðinna landbúnaðarvara taldist ekki nægjanlegt á innanlandsmarkaði. Skiptar skoðanir voru á því fyrirkomulagi og leiddi það til þess að í staðinn voru ákveðin tollatímabil lögfest á ákveðnum tegundum grænmetis. Þannig varð regluverkið skýrara, en á sama tíma ósveigjanlegra.
Árið 2020 og 2021 komu upp tilvik þar sem tiltölulega hár tollur var lagður á vöru á meðan innlend framleiðsla var ekki í boði, þ.e. innlenda framleiðslan kláraðist áður en tímabilið fyrir lægri tolla hófst. Af þeim sökum var farin sú leið að setja umrætt bráðabirgðaákvæði í desember 2021 til að koma í veg fyrir skortstöðu á markaði. Einungis var gert ráð fyrir því að bráðabirgðaákvæðið gilti á árinu 2022 og tóku tímabil í hverri tegund grænmetis mið af reynslu síðustu tveggja ára þar á undan ásamt því að sérstaklega var brugðist við þeirri óvissu um umfang tjóns af kartöflumyglu sem kom upp á Suðurlandi sumarið 2021.
Bráðabirgðaákvæðið hefur verið framlengt á hverju ári án frekari skoðunar, þrátt fyrir breyttar aðstæður. Samkvæmt upplýsingum frá framleiðendum og markaðsaðilum er uppskera flestra kartöflubænda með allra besta móti í ár, bæði hvað varðar magn og gæði. Því er nægilegt framboð tryggt til lengri tíma og óþarfi að gripið sé til sérstakra undanþágna frá tollum hvað kartöflur varðar. Þá er einnig birgðastaða gulróta og hvítkáls með besta móti og því ekki þörf á þeirri framlengingu á tímabili lægri innflutningstolla sem bráðabirgðaákvæðið veitir. Í ljósi þessa telja SAFL rétt að núverandi regluverk verði endurskoðað.


