Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarvörum sem taka gildi 1. júlí 2024

Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. júlí nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í nær öllum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði. Þetta kemur fram í frétt á vef Matvælaráðuneytisins. Um niðurstöður hverrar úthlutunar má lesa að neðan.

Niðurstöður úthlutunar á ESB tollkvótum

Þriðjudaginn 21. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1176/2023 fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2024. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 23 tilboð í tollkvótann.

Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 1.906 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 521 kr./kg.

VörulýsingTollkvóta úthlutað (kg)Fjöldi samþykktra tilboðaJafnvægisverð (kr./kg)
Nautgripakjöt348.00011520
Svínakjöt350.0008398
Alifuglakjöt428.00012589
Alifuglakjöt*100.000449
Reykt og saltað kjöt50.00010349
Sérostur **115.00080
Ostur190.00011960
Pylsur125.00012370
Unnar kjötvörur200.00011851

(*) alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið úr 0207
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla. Úthlutað með hlutkesti.


Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.

Niðurstöður úthlutunar á WTO tollkvótum

Þriðjudaginn 21. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum á grundvelli aðildarsamnings Íslands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (e. WTO) með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, samkvæmt reglugerð nr. 477/2024 fyrir tímabilið 1. júlí 2024 til 30. júní 2025. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 13 tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu, nema fyrir smjör, kinda- og geitakjöt. Samanlagt var 547,5 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 354 kr./kg.

VörulýsingTollkvóta úthlutað (kg)Fjöldi samþ. tilboðaJafnvægisverð (kr./kg)
Nautgripakjöt95.0006500
Svínakjöt64.00040
Kinda- eða geitakjöt35.00031
Kjöt af alifuglum59.0002301
Smjör og önnur fita13.50031
Ostur og ystingur119.0003551
Fuglsegg76.000261
Unnar kjötvörur86.0004681

Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.

Niðurstöður úthlutunar á EFTA tollkvótum

Þriðjudaginn 21. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í EFTA tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss á grundvelli stofnsáttmála EFTA ríkjanna, með vísan til reglugerðar nr. 484/2024 fyrir tímabilið 1. júlí 2024 til 30. júní 2025. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust fimm tilboð í tollkvótann.

Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 25 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 36 kr./kg.

VörulýsingTollkvóta úthlutað (kg)Fjöldi samþ. tilboðaJafnvægisverð (kr./kg)
Nautgripakjöt10.00011
Ostur og ystingur15.000259

Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.

Niðurstöður úthlutunar á tollkvótum fyrir blóm

Þriðjudaginn 25. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á blómum með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993 og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1178/2023 fyrir tímabilið 1. júlí 2024 til 31. desember 2024. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 3 tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 125.250 stk. tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 40 kr./stk.

VörulýsingTollkvóta úthlutað (stk.)Fjöldi samþ. tilboðaJafnvægisverð (kr./stk.)
Afskorin blóm118.750239
Tryggðablóm6.500161

Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.