Atvinnuvegaráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á búvörulögum á Alþingi í gær. Í frumvarpinu er lagt til að þrengja núverandi undanþáguheimildir mjólkur- og kjötafurðastöðva frá samkeppnisreglum þar sem undanþága frá samrunareglum er felld út. Þá eru lagðar til auknar heimildir Samkeppniseftirlitsins til að mæla fyrir um að samkomulag eða ákvörðun um samstarf sé óheimil, þeim skuli breytt eða að skylt verði að láta af þeim og grípa til aðgerða samkvæmt samkeppnislögum, enda feli samkomulag eða ákvörðun í sér skaðleg áhrif á samkeppni á markaði eða hættu á að samkeppni sé útilokuð.
„Ég sé ekki að frumvarpið í þeirri mynd sem það er nú sé til þess fallið að styrkja stöðu íslenskrar matvælaframleiðslu, því miður,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, í samtali við Bændablaðið. „Þörfin fyrir hagræðingu í landbúnaði hefur verið augljós um langt skeið og því var afar mikilvægt fyrir greinina að fá inn þær breytingar sem gerðar voru á búvörulögum árið 2024, þar sem kjötafurðastöðvum er heimilt að hagræða með sambærilegum hætti og hefur verið heimilt í mjólkuriðnaðinum um áratugaskeið. Aðgerðir til að ná og halda niðri kostnaði í matvælaframleiðslu styrkir samkeppnishæfni greinarinnar og við leggjum þunga áherslu á að halda áfram á þeirri braut en ekki snúa af henni."
Margrét segir að með frumvarpsdrögunum sé lagt til að draga úr heimildum úrvinnslufyrirtækja bænda til samvinnu og flækja regluverk töluvert frá því sem nú er, með tilheyrandi auknum kostnaði. „Nú þarf greinin á stöðugleika að halda. Sífelldar breytingar á regluverki landbúnaðarins – rétt eins og annarra greina – eru ekki til þess fallnar að stuðla að aukinni fjárfestingu, framþróun eða nýsköpun í greininni en það er nákvæmlega það sem þarf til að styrkja samkeppnishæfni og viðnámsþrótt inn í framtíðina.“


