Samtök iðnaðarins boða til fundar um tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu fimmtudaginn 12. nóvember kl. 8.30-10 í Kaldalóni í Hörpu. Boðið er upp á létta morgunhressingu frá kl. 8.30 og dagskrá fundarins hefst kl. 9.00.
Skýrt og fyrirsjáanlegt starfsumhverfi er forsenda fjárfestinga, uppbyggingar og framfara. Fyrirtæki þurfa að geta treyst því að reglur séu skýrar, framkvæmd þeirra samræmd og ákvarðanir stjórnvalda teknar með skilvirkum hætti.
Til mikils er að vinna. Með auknum fyrirsjáanleika, einfaldari ferlum og skilvirkari framkvæmd regluverks getum við styrkt samkeppnishæfni íslensks iðnaðar, hraðað uppbyggingu og skapað betri skilyrði til verðmætasköpunar.
Þátttakendur í dagskrá
- Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra
- Þorsteinn Víglundsson, formaður SI
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar
- Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI
- Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði



