Samtök fyrirtækja í landbúnaði kalla á eftir skýrari reglum um erlendar fjárfestingar í matvælaframleiðslu. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um drög að nýrri reglugerð sem getur haft áhrif á fyrirtæki í landbúnaði og matvælaframleiðslu.
Á þessu ári voru samþykkt lög um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis. Ef fyrirtæki starfar á svokölluðu „viðkvæmu sviði“ þarf að tilkynna stjórnvöldum þegar erlendur aðili eignast 25% hlut eða meira í því. Það sama gildir aftur við 33%, 50%, 75% og 100% eignarhlut. Ekki má ganga frá kaupum fyrr en samþykki ráðherra liggur fyrir. Erlendir aðilar teljast líka aðilar innan EES og innlend félög sem eru að helmingi eða meira í erlendri eigu. Í reglugerðinni á að skilgreina hvaða starfsemi telst viðkvæm og er fæðuöryggi þar á meðal.
SAFL styðja að fæðuöryggi sé viðurkennt sem þjóðaröryggismál. Drögin eru hins vegar svo víðtæk að þau gætu náð til nær allrar matvælaframleiðslu og -dreifingar í landinu, óháð stærð fyrirtækja. Til dæmis gæti lítið matvælafyrirtæki sem selur sjúkrahúsi eða hjúkrunarheimili vörur talist starfa á viðkvæmu sviði. Fyrirtækin þurfa sjálf að meta hvort þau falli undir reglurnar. Rangt mat getur haft alvarlegar afleiðingar, svo sem að kaup verði látin ganga til baka. Óvissan getur gert fjármögnun dýrari og dregið úr fjárfestingu í greininni. Það veikir að lokum fæðuöryggið sem reglunum er ætlað að vernda.
Samtökin leggja til eftirfarandi:
- Settar verði skýrar stærðarviðmiðanir, eins og gert er á öðrum sviðum, svo smærri fyrirtæki falli ekki undir reglurnar að óþörfu.
- Stjórnvöld tilnefni sjálf þau fyrirtæki sem eru mikilvæg fyrir fæðuöryggi, svo fyrirtæki viti fyrir fram hvort reglurnar eigi við þau.
- Ráðuneytið gefi út leiðbeiningar og fyrirtæki fái hæfilegan aðlögunarfrest.


