Nýjar umbúðareglur kalla á undirbúning íslenskra matvælafyrirtækja

Ný reglugerð Evrópusambandsins um umbúðir og umbúðaúrgang felur í sér auknar kröfur um endurvinnslu, endurnotkun og innihald umbúða. Í viðtali við Bændablaðið hvetur Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri matvæla hjá Samtökum iðnaðarins, íslenska framleiðendur til að hefja undirbúning og ræða tímanlega við birgja sína.

Reglugerð ESB um umbúðir og umbúðaúrgang, svonefnd PPWR-reglugerð (ESB 2025/40), kom almennt til framkvæmda í ríkjum sambandsins 12. ágúst síðastliðinn. Markmið hennar er meðal annars að draga úr umbúðanotkun, auka endurvinnslu og endurnotkun og samræma merkingar svo auðveldara verði fyrir neytendur að flokka úrgang. Reglugerðin tók formlega gildi 11. febrúar 2025. Í viðtali við Bændablaðið segir Sigurður Helgi að reglurnar feli í sér neytendavernd. Þar vísar hann meðal annars til takmarkana á skaðlegum efnum, minni umbúðanotkunar og þess að dregið verði úr úrgangi.

Fyrirtæki þurfa að kanna umbúðir og vottanir

Reglugerðin nær til allra umbúða sem settar eru á innri markað ESB og gerir kröfur um framleiðslu þeirra, samsetningu og endurvinnanleika. Meðal annars verða sett lágmarksviðmið um hlutfall endurunnins efnis í plastumbúðum. Einnig verða takmarkanir á PFAS-efnum í matvælaumbúðum og óþarfa rými í umbúðum. Bendir Sigurður Helgi á að íslensk matvælafyrirtæki þurfi að afla upplýsinga hjá umbúðabirgjum sínum, kanna hvort nauðsynlegar vottanir liggi fyrir og yfirfara efnasamsetningu þeirra umbúða sem þau nota. Aðgengi að vottuðum umbúðaefnum gæti orðið sérstök áskorun fyrir íslenskan markað. Enn sé óljóst hvort allir erlendir framleiðendur slíkra efna telji hagkvæmt að þjónusta jafn lítið markaðssvæði og Ísland. Fyrirtæki sem hefji undirbúning snemma og komi hönnun umbúða og samskiptum við birgja í góðan farveg verði því betur í stakk búin til að mæta nýjum kröfum.

Sérstök álitaefni fyrir íslenska framleiðslu

Reglurnar gera ráð fyrir aukinni lausasölu á ávöxtum og grænmeti og takmörkunum á tilteknum einnota neytendaumbúðum. Umbúðir geta þó lengt geymsluþol matvæla verulega og þannig komið í veg fyrir matarsóun. Sigurður Helgi nefnir spergilkál sem dæmi, en plastumbúðir geta lengt geymsluþol þess margfalt. Unnt verður þó að fara fram á undantekningar ef sýnt er fram á að minni notkun umbúða skerði gæði eða öryggi matvæla.

Málið hefur einnig sérstaka þýðingu fyrir íslenska garðyrkjuframleiðendur, sem hafa meðal annars nýtt umbúðir til að aðgreina innlendar vörur frá innfluttum.

Kröfur um endurnotanlegar drykkjarumbúðir geta sömuleiðis haft ófyrirséð áhrif hér á landi. Sigurður Helgi bendir á að Ísland búi nú þegar yfir skilakerfi með um 90% skilahlutfalli. Hann telur að tvöfalt kerfi endurvinnslu og endurnotkunar geti dregið úr virkni núverandi kerfis og jafnvel aukið plastnotkun í stað þess að draga úr henni. Mjólkurdrykkir verða þó undanþegnir tilteknum endurnotkunarkröfum þar sem enn hefur ekki tekist að þróa hentugar umbúðir sem tryggja nauðsynlegt matvælaöryggi.

Áhrifin þegar farin að koma fram

Gert er ráð fyrir þrepaskiptri innleiðingu reglnanna á löngum tíma. Reglugerðin verður tekin upp hér á landi í gegnum EES-samninginn, en ekki liggur enn fyrir hvenær einstök ákvæði hennar taka gildi á Íslandi. Áhrifin eru þó þegar komin fram hjá íslenskum fyrirtækjum sem flytja vörur á markað í ríkjum Evrópusambandsins.

SAFL hvetur fyrirtæki til að fylgjast vel með innleiðingunni, kortleggja núverandi umbúðanotkun og hefja samtal við birgja um vottanir, efnainnihald og framtíðarframboð umbúða.

Bændablaðið, 14. ágúst