Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) og Samtök iðnaðarins (SI) hafa skilað umsögn um frumvarp um breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku. Frumvarpið felur í sér hækkun jöfnunargjalds á raforku úr 0,52 kr. í 1,01 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun undir 1.000 MWst á ári.
Áhersla á skilvirkni og samkeppnishæfni
Í umsögninni lýsa samtökin stuðningi við markmið stjórnvalda um að jafna dreifikostnað raforku og styrkja byggðir landsins, en leggja jafnframt áherslu á að auknar álögur skili sér raunverulega í lægri kostnaði fyrir notendur í dreifbýli. Bent er á að fyrri hækkanir jöfnunargjalds hafi ekki alltaf skilað tilætluðum árangri þar sem gjaldskrár dreifiveitna hafi hækkað í kjölfarið.
SAFL og SI vara einnig við áhrifum hækkunarinnar á samkeppnishæfni fyrirtækja, sérstaklega í matvælaframleiðslu og ylrækt, þar sem raforkukostnaður vegur þungt í rekstri. Samtökin telja mikilvægt að skoða aðrar leiðir til fjármögnunar jöfnunarinnar, meðal annars með aukinni nýtingu arðgreiðslna ríkisorkufyrirtækja, fremur en frekari álögum á heimili og fyrirtæki.


