Styðja einföldun regluverks en vara við aukinni byrði á fyrirtæki

Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) og Samtök iðnaðarins (SI) styðja markmið frumvarps atvinnuvegaráðherra um Stofnun atvinnuveganna um einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu, aukið samræmi í eftirliti og bætta þjónustu við atvinnulífið. Samtökin leggja þó áherslu á að breytingarnar verði útfærðar þannig að þær auki ekki íþyngjandi reglubyrði eða kostnað fyrir fyrirtæki. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um frumvarpið, þar sem lagt er til að Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs verði sameinaðar í eina stofnun.

Samtökin telja að sameining eftirlitsstofnana geti skapað tækifæri til hagræðingar, einfaldari samskipta og aukins gagnsæis. Fyrirtæki gætu þannig átt samskipti við einn aðila í stað margra, sem myndi draga úr stjórnsýslubyrði og kostnaði. Hins vegar er lögð áhersla á að árangur breytinganna velti á því hvernig þær verði innleiddar. Sérstaklega þurfi að tryggja að eftirlit sé áhættumiðað og í samræmi við umfang starfsemi, gjaldtaka sé hófleg og gagnsæ og þjónustustig haldist óbreytt um land allt.

Vara við aukinni miðstýringu og kostnaði

SI og SAFL vara við því að aukin miðstýring geti leitt til strangari túlkunar reglna, meiri kröfu um upplýsingagjöf og minni sveigjanleika, sérstaklega fyrir smærri framleiðendur. Þá gagnrýna samtökin að kostnaðargreining liggi ekki fyrir. Nauðsynlegt sé að gjöld endurspegli raunverulegan kostnað og að hagræðing skili sér til atvinnulífsins í formi lægri gjalda eða betri þjónustu.

Umsögn samtakanna má lesa hér.