Samtök iðnaðarins (SI) styðja nýtt frumvarp um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Samtökin segja breytingarnar tímabærar og mikilvægar til að skýra ábyrgð og draga úr flækjustigi.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður í núverandi mynd og verkefni þess færð annars vegar til Matvælastofnunar og hins vegar Umhverfis- og orkustofnunar. SI telja að með því megi draga úr ósamræmi og tryggja jafnræði fyrirtækja um land allt. Samtökin benda jafnframt á að breytingarnar séu nauðsynlegar til að uppfylla kröfur ESA um samræmt eftirlit. Óbreytt ástand geti haft neikvæð áhrif á matvælaiðnað og útflutning.
Leggja samtökin áherslu á að nýtt kerfi megi ekki auka kostnað eða ófyrirsjáanleika fyrir fyrirtæki. Eftirlit þurfi að byggjast á gagnsæi, áhættumati og þjónustumiðaðri nálgun.


