Kallað eftir skýrum upplýsingum áður en kosið er um ESB viðræður

Samtök fyrirtækja í landbúnaði hafa sent Alþingi umsögn um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í umsögninni leggja samtökin áherslu á að áður en þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram þurfi að liggja upplýsingar um hvaða markmið stjórnvöld hyggist leggja til grundvallar í landbúnaðarkafla í hugsanlegum aðildarviðræðum. Án slíkra upplýsinga sé ómögulegt fyrir kjósendur að taka upplýsta ákvörðun um hvort hefja eigi umsóknarferlið að nýju eður ei.

Samtökin leggja fram sex lykilspurningar til utanríkismálanefndar. Þar er meðal annars kallað eftir skýrum svörum um opnunarskilyrði landbúnaðarkaflans og samningsmarkmið stjórnvalda. Jafnframt óska samtökin eftir frekari greiningu á áhrifum sameiginlegrar landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins (CAP), mögulegum breytingum á tollvernd og samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu, sem og áhrifum á umhverfis- og loftslagsmál. Samtökin leggja áherslu á að ítarlegar upplýsingar um þessi atriði séu forsenda upplýstrar umræðu og lýðræðislegrar ákvarðanatöku.

Hér má umsögn samtakanna í heild.