Jákvæðar breytingar á gjaldskrá raforku í dreifbýli

Samtök iðnaðarins (SI) lýsa yfir stuðningi við fyrirhugaðar breytingar á reglugerð um framkvæmd raforkulaga, sem kynnt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Markmið breytinganna er að skýra betur hvenær dreifiveitum sé heimilt að innheimta hærri gjaldskrá á dreifbýlissvæðum.

Samkvæmt drögunum þurfa dreifiveitur framvegis að sýna fram á raunverulegan kostnaðarauka vegna dreifingar raforku, meðal annars með kostnaðargreiningu sem ber saman mismunandi svæði innan sama veitusvæðis. Þannig verður ekki lengur nóg að vísa einungis til staðsetningar eða skilgreiningar á dreifbýli.

Í umsögn SI kemur fram að núverandi fyrirkomulag hafi í sumum tilvikum leitt til þess að iðnaðar- og athafnasvæði í jaðri þéttbýlis flokkist sem dreifbýli, sem hafi hækkað raforkukostnað fyrirtækja án þess að raunverulegur dreifikostnaður sé endilega meiri.

Samtökin telja því eðlilegt að gerð sé krafa um gagnsæjan rökstuðning fyrir hærri gjaldskrá og styðja breytingarnar sem lið í að skapa sanngjarnara og skýrara regluverk fyrir fyrirtæki um land allt.

Hér er hægt að lesa umsögn SI