„Ef við ætlum að vera með landbúnað og mjólkurframleiðslu á Íslandi, þá þurfum við að búa því þannig umhverfi að það sé einfaldlega hægt. Og þetta er bara hluti af því“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði (SAFL), meðal annars í þættinum Þetta helst á RÚV þar sem ostar voru til umfjöllunar, nánar tiltekið tollflokkun pítsaosts með íblandaðri jurtaolíu en Landsréttur vísaði á miðvikudaginn frá máli Danól ehf. gegn ríkinu vegna tollflokkunar vörunnar. Það er Ingvar Þór Björnsson sem ræðir við Margréti og Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda.
Margrét segir í þættinum að eðli tolla sé til þess að styðja við innlenda framleiðslu. „Öll okkar viðskiptalönd og langflest lönd í heiminum nota tolla til þess að styðja við sína framleiðslu. Og í þessu tilfelli þá er þetta stór hluti af stuðningskerfi landbúnaðarins. Þannig að það skiptir máli að þetta haldi.“ Hún segir að tollvernd skipti máli fyrir innlenda framleiðslu. „Þegar að innflutningur á þessari vöru var sem mestur, þá vorum við að tala um 300 tonn sem að var flutt inn í þessum flokki, sem sagt í þessum tollflokki sem menn vilja flokka þessa tilteknu vöru í. Það er verulega mikið magn af mjólk, það eru 3 milljónir lítra af mjólk sem að við sáum þá. Ef að það yrði hins vegar afnuminn allur tollur af þessari vöru, þá er rifostamarkaðurinn á Íslandi, hann er orðinn stærri og þá ertu kannski kominn með framleiðslu tuga kúabúa á Íslandi. Þannig að sannarlega hefur þetta gríðarlega mikil áhrif. Þarna undir eru miklir hagsmunir sem að einmitt hefur leitt til þess að við hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, ásamt Bændasamtökum Íslands, smáframleiðendum, ungum bændum, höfum verið í samskiptum við stjórnvöld um mikilvægi þess að tollvernd haldi. Vegna þess að við verðum að passa upp á að við getum ekki kippt einu úr sambandi án þess að annað komi í staðinn.“
Hér er hægt að hlusta á viðtalið í heild sinni.


