Huga þarf að samspili umbúðanotkunar og matarsóunar

Samtök iðnaðarins og Samtök fyrirtækja í landbúnaði lýsa yfir stuðningi við markmið stjórnvalda um að draga úr úrgangi og efla hringrásarhagkerfi í sameiginlegri umsögn samtakanna um drög að stefnunni Saman gegn sóun – stefna um úrgangsforvarnir. Umsögnin var lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda vegna máls um nýja stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda í úrgangsmálum.

Stefnt er að því að minnka sóun í matvælaframleiðslu um 10% og 30% hjá smásölu og neytendum fyrir árið 2030. Taka samtökin undir þessi markmið og styðja stjórnvöld í að stuðla að betri nýtingu og minni sóun þeirra verðmæta sem matvæli eru. Samtökin telja þó mikilvægt að stefna, regluverk og aðgerðir vinni saman og eitt megi ekki vinna gegn öðru.

Sérstaklega er bent á nýja umbúðarreglugerð ESB þar sem kveðið er á um bann við umbúðum fyrir ferska ávexti og grænmeti undir 1,5 kílóum. Slíkar kröfur geta aukið matarsóun þar sem umbúðir lengja geymsluþol og draga úr afföllum. Dæmi séu um að afföll grænmetis í smásölu hafi lækkað úr um 15% niður í 1–2% þegar notaðar eru umbúðir. Þá benda samtökin á að kostnaður felst í umbúðanotkun og því eru þær jafnan ekki notaðar án ástæðu.

Samtökin hvetja stjórnvöld til að taka mið af sérstöðu Íslands við innleiðingu fyrrgreindra reglna og lýsa sig reiðubúin til áframhaldandi samstarfs um úrgangsforvarnir.

Umsögn samtakanna má lesa hér.