Atvinnuvegaráðuneytið hefur nú birt niðurstöðu úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarvörum sem tóku gildi 1. janúar sl. Tollkvótarnir gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Umfangsmestir eru ESB tollkvótarnir en þeir eru til 6 mánaða. Þegar rýnt er í gögnin er ljóst að met hefur verið slegið í öllum flokkum þegar litið er til eftirspurnar sem hlutfall af framboði. Mesta verðhækkun (í krónum talið) milli tollútboða er í lífrænum alifugli, en hann hækkar úr 320 kr. í 460 kr. Mesta lækkunin (í krónum talið) milli útboða er í osti sem fer úr 991 kr. í 901 kr.
Þegar litið er til verðþróunar tollkvóta með tilliti til þróunar vísitölu neysluverðs má sjá að þrátt fyrir nokkra hækkun í nautakjöti á milli útboða er verðið á svipuðu róli og var í ársbyrjun janúar 2023. Í hefðbundnum alifugli hefur verð verið að þróast nokkuð niður á við frá ársbyrjun 2023. Í svínakjöti, sem og osti hefur verðið ekki verið lægra síðan um mitt ár 2022.

Meteftirspurn eftir tollkvótum
Samkvæmt gögnum ráðuneytisins hefur eftirspurn sem hlutfall af framboði tollkvóta aukist jafnt og þétt frá því tollkvótar frá ESB tóku að aukast árið 2018. Fyrir 5 árum var algengt að eftirspurnin væri 2-3föld á við framboðið hverju sinni en í dag er hún um 5-6,5föld. Svínakjöt er eini flokkurinn þar sem hlutfallið lækkar lítillega. Hér vekur sérstaklega athygli að eftirspurnin í osti eykst verulega, á sama tíma og verð lækkar skarpt.

Einnig var úthlutað tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi, ostum og unnum vörum frá Bretlandi, og plöntum og blóm. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella hér.

