Þingmenn Miðflokksins vilja að atvinnuvegaráðherra ráðist í aðgerðir til þess að stuðla að fæðuöryggi og efla innlenda matvælaframleiðslu. Meðal þeirra átta aðgerða sem lagðar eru til er að ráðist verði í gerð heildstæðrar landsáætlunar með þátttöku hagaðila, þar sem útlistað verði hvernig fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt, við hvaða aðstæður sem upp kunna að koma á heimsvísu sem og á Íslandi.
"Við fögnum þessu og hvetjum þingheim til að veita málinu brautargengi. Það er mikilvægt að Ísland sé með skýra fæðuöryggisstefnu, sem er hluti af þjóðaröryggisstefnu. Aukin spenna á heimsvísu hefur leitt það enn frekar í ljós. Við erum nú þegar á eftir nágrannaríkjum okkar hvað þetta varðar og við því þarf að bregðast." segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.
Í tillögunni er einnig kveðið á um að einfalda þurfi eftirlitskerfi matvælaframleiðslu, það gert skilvirkara og kostnaði við eftirlit verði létt af greininni. SAFL taka undir þörfina á því og benda meðal annars á þann mikla kostnaðarauka sem hlotist hefur af breytingum á gjaldskrá Matvælastofnunar undanfarna 18 mánuði.
Þá er lagt til að tryggja skuli að innlend matvælaframleiðsla búi við öruggt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi og viðunandi starfsumhverfi afurðastöðva með tillit til hagræðingar.
"Fyrirsjáanlegt starfsumhverfi í landbúnaði er grundvallaratriði fyrir stöðugleika og sjálfbæra þróun greinarinnar. Framleiðsluferill í landbúnaði er sem kunnugt er langur og krefst þolinmóðs fjármagns. Þá er fyrirsjáanleiki mikilvægur með tilliti til tjármögnunar og fjárfestinga. Síbreytilegar leikreglur greinarinnar getur aukið áhættu og dregið úr vilja lánastofnana og fyrirtækja og bænda til fjárfestinga." segir Margrét.


