Umræða um fæðuöryggi hefur vaxið mjög á undanförnum árum, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Nýlega hélt atvinnnuvegaráðherra málþing um stöðu fæðuöryggis á Íslandi þar sem kynntar voru tvær skýrslur sem unnar hafa verið fyrir atvinnuvegaráðuneytið og beina þær sjónum að sama einstaka þætti fæðuöryggis - neyðarbirgðum. Mikilvægt er þó að hafa í huga að fæðuöryggi er ekki aðeins spurning um mat á lager, né um það hve mikið af matvælum má finna í birgðageymslum frá degi til dags. Fæðuöryggi lýtur dýpri lögmálum. Það byggir á seiglu kerfa, þ.e. getu samfélags til að framleiða, vinna, geyma og dreifa matvælum í öllum aðstæðum - líka þegar óvænt áföll dynja yfir.
Sé litið til skilgreiningar matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) byggir fæðuöryggi á fimm stoðum: a) framboði, b) aðgengi, c) nýtingu, d) stöðugleika og e) seiglu. Þær stoðir sem aftur á móti skipta mestu í norðlægum, fámennum ríkjum eins og Íslandi eru: a) seigla, b) innviðir, c) orka, d) mannauður, e) framleiðslugeta og f) stjórnsýslulegur styrkur. Þetta eru atriði sem ráða því hvort matvælakerfi standa af sér áföll – ekki hversu mikil þurrvara er til í skápum landsmanna hverju sinni. Hér verður farið yfir nokkur þessara atriða.
Innlend framleiðsla er innviður
Innlend framleiðsla er hluti af þjóðaröryggi landsins og verður því að skilgreina sem mikilvæga innviði. Ríki sem hafa náð hvað mestum árangri á sviði fæðuöryggis hafa farið þá leið og alþjóðlegar stofnanir líta til sem fyrirmyndar. Þannig er litið á þætti eins og framleiðslugetu, fóðuröryggi, landnotkun og mannauð sem mikilvægar varnir samfélagsins, þ.e. kerfi sem verða að starfa áfram jafnvel þegar annað stöðvast.
Norska matvæla- og öryggisstefnan tekur sérstaklega fram að innlend framleiðsla er fyrsta stoð samfélagslegrar seiglu. Noregur skilgreinir því landbúnað og matvælaframleiðslu formlega sem varnarkerfi rétt eins og orkukerfi, fjarskipti og heilbrigðisþjónustu. Stuðningskerfi og tollvernd eru þar hluti af því að tryggja stöðugleika framleiðslu á löngum tíma og geti aukið afköst þegar áföll dynja yfir. Þetta er kerfisnálgun sem Ísland á miklu meira skylt með en flestir gera sér grein fyrir.
Orka er lykilstoð fæðuöryggis
Við búum svo vel að hafa aðgang að innlendri endurnýjanlegri orku sem veitir okkur meiri stöðugleika en margar aðrar þjóðir - sem treysta á innflutta orkugjafa og sveiflukenndan orkumarkað - búa við. Rafmagnsskortur í Evrópu á árunum 2021–2023 hafði t.d. veruleg áhrif á rekstur sláturhúsa, fiskvinnslna, frystigeymslna og dreifikerfa og matvælaverð hækkaði hratt. Hækkanir hérlendis voru mun minni og í sumum tilfellum margfalt minni á sama tíma og matvælakeðjan starfaði hnökralítið, þar sem okkar innlenda orkukerfi verndaði íslensku framleiðsluna fyrir þessum miklu sveiflum á orkukostnaði. Aðgengi að orku er því einn af lykilþáttum í virkri fæðuöryggisstefnu.
Mikilvægi mannauðsins
Alþjóðlegar stofnanir hafa ítrekað bent á að seigla matvælakerfa ræðst af getu þeirra einstaklinga og stofnana sem viðhalda þeim. Þannig er ekki einungis litið til tækjakostar og aðgengis að auðlindum, heldur einnig að til staðar sé fólk sem kann að reka kerfin. Í norðlægum ríkjum þar sem loftslag er krefjandi og árstíðasveiflur miklar skiptir þessi þekking gríðarlega miklu máli, þar sem hún er sérhæfð og á færi fárra á heimsvísu. Bændur sem kunna að nýta land á norðlægum slóðum, faglært starfsfólk í afurðastöðvum sem heldur flóknum framleiðslukerfum gangandi, tæknifólk sem tryggir að kælikeðjur bili ekki og sérfræðingar sem halda stafrænum innviðum gangandi. Allt þetta er raunveruleg geta sem ekki er hægt að endurskapa á einni kynslóð ef hún glatast. Þess vegna er mannauður einn af helstu innviðum fæðuöryggis.
Ný nálgun á fæðuöryggi Íslands
Þegar litið er til þess að grunnstoðir fæðuöryggis eru framleiðslugeta, orka, innviðir og fólkið sem heldur kerfinu gangandi, er ljóst að Ísland þarf að horfa á málaflokkinn með mun víðari linsu en einungis birgðastöðulinsunni. Birgðir eru sannarlega hluti af fæðuöryggi - en sem viðbót, ekki grunnstoð.
Ísland þarf stefnu í fæðuöryggismálum sem byggir á því að tryggja hæfni matvælakerfisins í heild til að standa af sér áföll. Það er nálgun þeirra ríkja sem hafa mótað stefnu á þessu sviði í áratugi – og það er sú sýn sem Ísland þarf að endurspegla. Við þurfum að byggja fæðuöryggi okkar m.a. á; framleiðslugetu sem er skilgreind sem innviður í þjóðaröryggislegu samhengi; innlendri orku sem tryggir stöðugleika vinnslu, geymslu og dreifikerfa; og mannauði og þekkingu sem er raunveruleg stoð seiglu samfélagsins. Og við verðum að búa innlendri framleiðslu starfsumhverfi sem styður við framangreint.
Höfundur er Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 12. desember 2025


