Atvinnuvegaráðherra birt fyrr í þessum mánuði drög að frumvarpi um breytingar á búvörulögum í samráðsgátt stjórnvalda. Drögin hafa fengið töluverða gagnrýni frá bændum, samtökum bænda og samtökum fyrirtækja í landbúnaði en í drögunum er lagt til að gera grundvallarbreytingar á starfsumhverfi mjólkurframleiðslunnar ásamt því að afnema þær heimildir til hagræðingar sem kjötafurðastöðvum var veitt í fyrra.
Samtök fyrirtækja í landbúnaði leggjast alfarið gegn framlagningu frumvarpsins. Samtökin telja að frumvarpið sé ekki til þess fallið að uppfylla meginmarkmið þess um að stuðla að hagfelldari starfsskilyrðum í landbúnaði með áherslur á að styrkja stöðu bænda í virðiskeðjunni af eftirfarandi sökum:
- Með frumvarpinu eru núverandi heimildir úrvinnslufyrirtækja bænda til hagræðingar skertar á sama tíma og kvaðir eru auknar.
- Boðaðar eru grundvallarbreytingar á núverandi starfsumhverfi mjólkuriðnaðarins, án ástæðu. Þær heimildir sem þar gilda í dag eru forsenda hagræðingar sem skila bændum og neytendum ávinningi sem nemur 3 milljörðum króna á ári.
- Ekkert samtal eða samráð átti sér stað við afurðastöðvar né bændur eða samtök þeirra við undirbúning málsins.
- Alfarið er fallið frá markmiðum fyrri frumvarpa og núgildandi laga um hagræðingu í slátrun og vinnslu sauðfjár og stórgripa, þrátt fyrir þverpólitíska samstöðu um mikilvægi þess að ná niður framleiðslukostnaði í þeim hluta landbúnaðarframleiðslunnar til hagsbóta fyrir bændur.
- Lagt er til að veita frumframleiðendum og framleiðendafélögum undanþágu frá ákvæðum 10. og 12. gr. samkeppnislaga. Á sama tíma eru allir samningar, nýir jafnt sem gildandi, skuldbundnir samþykki Samkeppniseftirlitsins, þrátt fyrir undanþágu.
- Ekki er tekið tillit til þróunar á félagaformi og eignarhaldi afurðastöðva í landbúnaði sem hefur átt sér stað hér á landi.
- Frumvarpið felur í sér stefnubreytingu frá stærðarhagkvæmni og samvinnu á mjög svo dreifðum örmarkaði í viðkvæmri stöðu.


