Aðalfundur Samtaka fyrirtækja í landbúnaði var haldinn fimmtudaginn 8. maí sl. í Húsi atvinnulífsins.
Kjör í stjórn samtakanna fór fram á aðalfundinum og verður stjórnin óbreytt. Sjö manns sitja í stjórn og gáfu allir stjórnarmenn áframhaldandi kost á sér. Ekki bárust önnur framboð. Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, er áfram formaður samtakanna og Pálmi Vilhjálmsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, varaformaður. Meðstjórnendur eru Ágúst Torfi Hauksson, Kjarnafæði Norðlenska, Eggert Árni Gíslason, Mata, Gunnlaugur Karlsson, Sölufélagi garðyrkjumanna, Steinþór Skúlason, Sláturfélagi Suðurlands, og Úlfur Blandon, Fóðurblöndunni.
Myndatexti: Stjórn SAFL. Talið frá vinstri: Úlfur Blandon, Eggert Árni Gíslason, Steinþór Skúlason, Sigurjón Rafnsson, Pálmi Vilhjálmsson og Gunnlaugur Karlsson. Á myndina vantar Ágúst Torfa Hauksson.


