Gildi búvörulaga staðfest af Hæstarétti

Samtök fyrirtækja í landbúnaði fagna niðurstöðu Hæstaréttar Íslands sem í dag staðfesti gildi nýlegra breytinga á búvörulögum, sem veittu úrvinnslufyrirtækjum bænda heimildir til hagræðingar þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga. Íslenskur landbúnaður hefur um áratugaskeið búið við mun lakari rekstrarskilyrði og þrengri samkeppnislöggjöf heldur en bændur og fyrirtæki þeirra í Noregi og innan aðildarríkja ESB og er markmið breytinganna að rétta af þann aðstöðumun.

Með dóminum er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur felld úr gildi og staðfest að lagasetning Alþingis hafi farið fram í samræmi við áskilnað stjórnarskrár Íslands. Breytingarnar á búvörulögum hafa því verið í fullu gildi frá samþykkt laganna á Alþingi í mars 2024. Allir sjö dómarar Hæstaréttar dæmdu í málinu.

Hæstiréttur hafnaði málatilbúnaði Innnes ehf. þess efnis að þingleg málsmeðferð hefði verið ófullnægjandi. Með þessari niðurstöðu hefur Hæstiréttur endanlega staðfest að Alþingi hafi haft fullar heimildir til að samþykkja umrætt lagaákvæði, þrátt fyrir breytingar sem gerðar voru í meðförum þingnefndar.

„Í kjölfar dóms héraðsdóms í vetur voru öll hagræðingaráform á grundvelli laganna stöðvuð, með tilheyrandi kostnaði og óvissu. Hefur því ekki gefist rúm til að ráðast í hagræðingaraðgerðir þrátt fyrir að nú sé staðfest að lögin hafi verið í gildi í rúmt ár. Við fögnum því mjög að réttaróvissunni sem skapaðist með dómi héraðsdóms hafi nú verið aflétt. Þetta er mikilvæg niðurstaða – ekki bara fyrir íslenskan landbúnað heldur einnig fyrir sjálfstæði Alþingis,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL.

Samtökin hafa frá upphafi gagnrýnt þá óvissu sem dómur héraðsdóms skapaði – bæði fyrir bændur og úrvinnslufyrirtæki þeirra sem þurfa á stöðugleika og réttarvissu að halda, sem og fyrir stjórnskipan landsins. Það er mat samtakanna að með dómi Hæstaréttar sé dregin skýr lína á milli efnislegrar gagnrýni á lög og þeirra krafna sem gerðar eru til formlegrar málsmeðferðar samkvæmt stjórnarskrá.