Í janúar sl. óskuðu Samtök fyrirtækja í landbúnaði og Bændasamtök Íslands í sameiningu eftir fundi með Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á raforkumarkaði og stöðu garðyrkjubænda af þeim sökum. Samtökin ítrekuðu að mikil tækifæri lægu í því að auka raforkuframleiðslu fyrir innlenda matvælaframleiðslu og mikilvægt að stjórnvöld myndu bregðast staðfastlega við þeim áskorunum sem framundan væru. Í framhaldi boðaði ráðherra samtökin á fund um miðjan febrúar sl. þar sem staðan var útskýrð frekar fyrir ráðherra og hún rædd.
Það er því fagnaðarefni að ráðherra hafi fyrir helgina kynnt þau áform sín að verja 160 milljónum króna í fjárfestingastuðning við garðyrkjubændur á þessu ári og því næsta með áherslu á LED-lýsingu og annan orkusparandi búnað, en skipti í LED-lýsingu geta dregið úr raforkunotkun í garðyrkju um 40-60%. Fjárfestingarátakið mun að sögn ráðherra skila sér í lægri orkureikningum fyrir bændur, minni niðurgreiðsluþörf af hálfu ríkissjóðs og auknum orkusparnaði fyrir samfélagið allt ásamt því að halda aftur af verðinu á góðu íslensku grænmeti.
Sérstök umræða um orkumál og stöðu garðyrkjubænda fór fram á Alþingi fyrir helgina þar sem umhverfis-, orku, og loftslagsráðherra var til svara. Í máli ráðherra kom fram að unnið væri að breytingum á lagaumgjörð raforkumarkaðar sem hafa það að markmiði að verja hagsmuni heimila og fyrirtækja og tryggja forgang almennra notanda. Almennar aðgerðir væru hins vegar ekki nægjanlegar einar og sér fyrir garðyrkjubændur og áratugir væru síðan stjórnvöld hefðu ráðist í skipulegan fjárfestingarstuðning til ylræktar. Samkvæmt frétt á vef ráðuneytisins verður nánari útfærsla og auglýsing umsókna kynnt á næstu dögum.
Samtök fyrirtækja í landbúnaði fagna þessari ákvörðun ráðherra. Leggja samtökin vonir við að þetta skref sé eitt af mörgum til að efla frekar innlenda matvælaframleiðslu.


