Greint var frá því í Morgunblaðinu fyrir helgina að ráðherra hafi fallið frá meðalgöngu í máli Samkeppniseftirlitsins gegn Innnes ehf. fyrir Hæstarétti, þar sem tekist er á um gildi breytinga á búvörulögum sem gerðar voru á Alþingi í fyrra. Þetta þýðir að ríkislögmaður, sem áður hafði óskað eftir leyfi til áfrýjunar í formi meðalgöngu, mun ekki verja hagsmuni ríkisins í málinu.
„Það vekur furðu að íslenska ríkið kjósi að verja ekki sína hagsmuni í máli sem snýst um grundvallaratriði lagasetningar.“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði. Hér sé verið að takast á um niðurstöðu héraðsdóms um að búvörulög, sem Alþingi samþykkti í mars í fyrra, hefðu ekki lagagildi þar sem breytingar sem urðu á frumvarpinu í meðförum þingsins hafi verið svo miklar að leggja hefði þurft fram nýtt frumvarp, að mati dómsins. Þannig hafi lögin því ekki fengið þrjár umræður líkt og kveðið er á um í 44. gr. stjórnarskrárinnar og því ekki öðlast gildi. Niðurstaða héraðsdóms hlaut gagnrýni og hefur verið umdeild.
Ríkislögmaður hafði áður óskað eftir að áfrýja dómnum
Fyrir alþingiskosningar hafði ríkislögmaður, fyrir hönd íslenska ríkisins, óskað leyfis Hæstaréttar til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur beint til réttarins í formi meðalgöngu. Byggði íslenska ríkið á því að fordæmisgildi málsins væri töluvert, þá sérstaklega á beitingu 44. gr. stjórnarskrárinnar auk almennrar þýðingar fyrir beitingu réttarreglna. Þá kynni það að veita leiðsögn um þá kröfu að lagafrumvörp séu rædd við þrjár umræður á Alþingi, hvenær breytingar séu svo miklar að um nýtt frumvarp sé í reynd að ræða og svigrúm löggjafans í því sambandi.
„Þó svo hér séu til umfjöllunar breytingar á búvörulögum þá snýst hinn áfrýjaði dómur Héraðsdóms Reykjavíkur ekki um efni laganna heldur fyrst og fremst um þinglega meðferð. Sú staðreynd að Hæstiréttur sé fullskipaður sýnir fram á þunga málsins og því er óskiljanlegt að ráðherra telji ekki þörf á því að ríkið eigi beina aðkomu að málinu og gæti sinna hagsmuna, líkt og hafði áður verið lagt upp með. Í þessu sambandi skiptir máli hvaða ráðherra gaf ríkislögmanni þessi fyrirmæli um að draga íslenska ríkið úr málinu og á hvaða forsendum,“ segir Margrét.
Bendir hún enn fremur á að með þessu er Samkeppniseftirlitinu eftirlátið að halda uppi vörnum fyrir íslenska ríkið sem verði að teljast óheppilegt í ljósi þess að eftirlitsstofnunin hefur lýst sig mótfallið umræddum lagabreytingum frá upphafi. Í því efni vekur athygli að Samkeppniseftirlitið gerði enga kröfu um frávísun málsins í héraði, sem telja má fullvíst að óháður aðili hefði gert kröfu um, og tók í raun undir málatilbúnað Innnes ehf. hvað varðaði lögvarða hagsmuni fyrirtækisins af úrlausn málsins, þó fullt tilefni hafi verið til að andmæla.


