Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, hefur lagt fram frumvarp sem afnemur þær breytingar á búvörulögum sem gerðar voru í mars 2024 og heimiluðu nauðsynlega hagræðingu í sláturiðnaði. Hefur verið boðað að annað frumvarp verði lagt fram í haust sem veitir svo aftur heimildir til hagræðingar, en ekki liggur fyrir á þessari stundu með hvaða hætti það verður.
Samtök fyrirtækja í landbúnaði leggjast harðlega gegn samþykkt frumvarpsins. Benda samtökin meðal annars á að ekki verði annað séð en að markmið með framlagningu frumvarpsins sé að hafa áhrif á framgang dómsmáls fyrir æðsta dómstól landsins sem nú fjallar um stjórnskipulegt gildi umræddar laga sem fella á úr gildi og þannig koma í veg fyrir að málið hljóti efnismeðferð. Gera samtökin alvarlegar athugasemdir við slíkar fyrirætlanir. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um málið.
"Stjórnskipulegt gildi laganna er til meðferðar fyrir Hæstarétti og má vænta niðurstöðu á næstu vikum. Eðlilegast hefði verið að bíða eftir niðurstöðu Hæstaréttar og meta svo stöðuna í framhaldinu." segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL, en mikill flýtir hefur virst vera á málinu. Þar má nefna að frumvarpið var ekki kynnt í samráðsgátt stjórnvalda þrátt fyrir að kveðið sé á um slík vinnubrögð í samþykkt ríkisstjórnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna.
Samtökin gagnrýna einnig að hvorki liggi fyrir mat á afleiðingum afnáms laganna á greinina né á lögskipti sem hafa orðið á grundvelli laganna. Auk þess liggur ekki fyrir hvað koma skuli í staðinn.
Réttast er að draga umrætt frumvarp til baka og endurskoðun laganna fari ekki fram fyrr en niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir og þegar ljóst er hvaða efnisbreytingar ríkisstjórnin vill gera á búvörulögum.


