Útgreiðsluhlutfall flutningsjöfnunar lækkar í 34,4%

Nýlega voru birt drög að frumvarpi um breytingu á lögum um svæðisbundan flutningsjöfnun í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða stuðning við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni sem býr við skerta samkeppnisstöðu vegna lengri flutningsleiða og þar með hærri flutningskostnaðar.

Með breytingunum er gildistími laganna framlengdur og fjárhæðarviðmið og reiknireglur eru færðar yfir í reglugerð. Samtök fyrirtækja í landbúnaði styðja við breytingarnar í umsögn sinni um málið.

Potturinn óbreyttur um árabil

Sé litið aftur um 5 ár má sjá að fjárveitingar til svæðisbundinnar flutningsjöfnunar hafa nær haldist óbreyttar þrátt fyrir hækkandi flutningskostnað og þar með hækkandi fjárhæð umsókna. Bendir SAFL á að þessi þróun leiðir af sér sífellt lækkandi útgreiðsluhlutfall til fyrirtækja. Þar með er markmiði laganna, um að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni, sem býr við skerta samkeppnisstöðu vegna lengri flutningsleiða og þar með hærri flutningskostnað, ekki náð með sama hætti og áður.

Styrkurinn er mikilvægt verkfæri til þess að bæta hluta þess aðstöðumunar sem fyrirtæki og framleiðendur sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn búa við. Því er mikill ávinningur í því að fjárveitingar til verkefnisins haldist í hendur við vaxandi flutningskostnað.

Hægt er að lesa umsögn SAFL um málið með því að smella hér.