'}}
Á hlaðinu komið í loftið

Á hlaðinu eru nýir hlaðvarpsþættir Samtaka fyrirtækja í landbúnaði þar sem rætt verður við fulltrúa flokka sem gefa kost á sér í Alþingiskosningum 30. nóvember næstkomandi.

Rætt verður um stefnu flokkanna, áherslur í komandi búvörusamningaviðræðum, tollamál og fleira. Þættirnir verða aðgengilegir hér á heimasíðu SAFL sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.