Samtök fyrirtækja í landbúnaði og Bændasamtök Íslands efna til morgunfundaraðar um landbúnaðarmál.
Næsti morgunfundur verður haldinn 19. september nk. kl. 9-10 í húsakynnum Mjólkursamsölunnar að Bitruhálsi 1 í Reykjavík. Þá mun Axel Sæland, formaður deildar garðyrkjubænda hjá BÍ og garðyrkjubóndi í Reykholti í Biskupstungum, fjalla um orkumál og garðyrkju.
Fundirnir eru hugsaðir sem umræðuvettvangur fyrir hvers konar málefni er snerta landbúnaðinn. Fundirnir verða með óformlegu sniði þar sem fólki gefst tækifæri til að kynna sínar athuganir og hugmyndir og eftir að framsögu lýkur gefst tími til fyrirspurna og almennra umræðna.
Morgunfundirnir eru opnir öllum.
Áhugasamir geta skráð sig á póstlista og fengið upplýsingar um komandi fundi með því að senda póst á safl@safl.is