Mæta á rekstrarhalla MAST á kostnað matvælaframleiðenda

Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) og Samtök iðnaðarins (SI) telja nýja gjaldskrá Matvælastofnunar (MAST) leiða af sér hækkun á framleiðslukostnaði matvæla og gagnrýna stuttan fyrirvara við gildistöku gjaldskrárbreytinganna. Þetta kemur fram í frétt mbl.is þar sem rætt er við Sigurð Helga Birgisson, viðskiptastjóra á iðnaðar- og hugverkasviði SI, sem segir gjaldskrárbreytinguna vera til komna til þess að mæta rekstrarhalla MAST á kostnað matvælaframleiðanda.

Fyrrverandi matvælaráðherra stöðvaði hækkun gjaldskrárinnar

Í fréttinni kemur fram að Sigurður bendi á að í ljósi efnahagsástandsins þá hafi gjaldskráin mætt töluverðri andstöðu fyrir ári síðan. Þá hafi fyrrverandi matvælaráðherra stöðvað hækkunina en nú í byrjun mánaðar hafi núverandi matvælaráðherra undirritað nýja gjaldskrá með einhverjum breytingum sem taki gildi 1. júní. „Hún stöðvaði þetta síðasta haust og svo heyrðist ekkert meir um það og svo kemur þetta svona óvænt fram. MAST hafa sagt að þetta sé mildari útgáfa og að þau hafi ekki farið í alla hækkunina, en þau gera ráð fyrir að öll hækkunin verði komin í gagnið á næstu tveimur eða þremur árum.“

Gjaldskrárbreyting til að stoppa upp í tæplega 500 milljóna gat MAST

Í frétt mbl.is segir Sigurður breytinguna tilkomna eftir greiningu KPMG á rekstri stofnunarinnar og matvælaeftirlitsins. Greiningin hafi leitt í ljós vöntun á innheimtu gjalds fyrir daglegt eftirlit stofnunarinnar í sláturhúsum um rúmar 217 milljónir króna og innheimtu gjalds fyrir almennt eftirlit um tæpar 260 milljónir króna. „Þessi gjaldskrárbreyting er í rauninni til þess að sporna gegn rekstrarhalla stofnunarinnar, þannig að tilgangur breytingarinnar er að stoppa upp í tæplega fimm hundruð milljóna gat, sem á að innheimta hjá þjónustuþegum eða þá matvælaframleiðendum.“

Stuttur fyrirvari á gildistöku gjaldskrár kemur illa við matvælaframleiðendur 

Þá kemur fram í fréttinni að SI og SAFL geri einnig athugasemd við stuttan fyrirvara á gildistöku breyting­anna, en samtökin voru fyrst upplýst um fyrirhugaða gildistöku þremur vikum áður en hún kom til framkvæmda. Að mati samtakanna hafi lögbundnu kynningar- og samráðsferli gjaldtökuheimildar ekki verið fylgt sem skildi. Leita skuli umsagna hags­munaaðila og kynna fyrirhugaðar breytingar að minnsta kosti mánuði fyrir gildistöku. „Matvælaframleiðsla í eðli sínu er viðkvæm fyrir utanaðkomandi áhrifum, þannig að fyrirsjáanleiki í rekstri er lykilatriði og það kemur illa við framleiðendur þegar það er ráðist í svona breytingar án hæfilegs fyrirvara.“