Reglur um áburðarvörur verði skýrar

Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) hafa skilað umsögn um drög að nýrri reglugerð um áburðarvörur. Samtökin styðja markmið um aukin gæði og öryggi en telja að drögin gangi á nokkrum sviðum lengra en nauðsynlegt er.

SAFL leggja áherslu á að kröfur verði skýrar, fyrirsjáanlegar og byggðar á áhættumati. Á litlum markaði geti kostnaður vegna rannsókna, skráningar og tafa haft bein áhrif á verð, birgjaval og afhendingaröryggi. Samtökin leggja meðal annars til skýra aðgreiningu á milli CE-merktra vara, vara sem njóta gagnkvæmrar viðurkenningar innan EES og innlendra vara án CE-merkingar. Einnig þurfi að liggja fyrir hvort skráning hjá Matvælastofnun sé einföld tilkynning eða ígildi markaðsleyfis.

Strangari kadmíumkröfur en innan EES

SAFL gera sérstaka athugasemd við fyrirhuguð mörk fyrir kadmíum í fosfóráburði en mörkin hafa um áratugaskeið verið lægri hérlendis en innan EES. Í drögunum er miðað við minna en 22 mg kadmíums á hvert kíló P₂O₅, en viðmið reglugerðar ESB er 60 mg/kg P₂O₅ fyrir fosfatáburð með að minnsta kosti 5% P₂O₅. Ekki er rökstutt hvers vegna íslenska viðmiðið sé og eigi að haldast svo miklu strangara. Slík krafa geti þrengt birgjaval, hækkað verð og haft áhrif á afhendingaröryggi. SAFL leggja því til að viðmiðin verði samræmd þeim sem gilda á innri markaði EES.

Samtökin leggja jafnframt til fimm ára rekjanleika í stað tíu ára, viðurkenningu jafngildra vinnsluaðferða og vottana, áhættutengt eftirlit og minnst tólf mánaða aðlögunarfrest. Með skýrari reglum og raunhæfum kröfum sé unnt að tryggja öryggi og gæði áburðarvara án óþarfa kostnaðar og viðskiptahindrana.

Hér má lesa umsögn SAFL í heild.