Skýr og fyrirsjáanleg umgjörð forsenda árangurs Loftslags- og orkusjóðs

Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu styðja markmið fyrirhugaðrar reglugerðar um Loftslags- og orkusjóð. Samtökin leggja þó áherslu á að starfsemi sjóðsins byggist á skýrum reglum, gagnsæjum matsviðmiðum og samkeppnishlutleysi.

Loftslags- og orkusjóði er ætlað að styðja við samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, orkuskipti, nýtingu innlendrar endurnýjanlegrar orku og aukið orkuöryggi. Í sameiginlegri umsögn samtakanna kemur fram að sjóðurinn geti orðið öflugt tæki til að hraða nýsköpun og nauðsynlegum fjárfestingum atvinnulífsins.

Samtökin telja mikilvægt að fyrirtæki geti séð fyrir fram hvaða atriði ráði mestu við mat umsókna. Þar geti meðal annars verið horft til árangurs verkefna í loftslags- og orkumálum, umfangs fjárfestinga og þess hvort styrkur geri fyrirtæki fær um að ráðast í verkefni eða flýta framkvæmd þeirra. Skýr matsviðmið auki fyrirsjáanleika og stuðli að gagnsærri ráðstöfun opinbers fjár. Jafnframt þurfi að tryggja að styrkveitingar raski ekki samkeppni eða skapi einstökum aðilum óeðlilegt forskot. Þetta eigi sérstaklega við á nýjum mörkuðum sem tengjast orkuskiptum, svo sem markaði fyrir hleðsluþjónustu. Sömu málefnalegu viðmið þurfi að gilda um alla umsækjendur, óháð eignarhaldi.

Í umsögninni er einnig kallað eftir skýrari reglum um ríkisaðstoð. Við hverja úthlutun til fyrirtækja í samkeppnisrekstri þurfi að koma skýrt fram á hvaða heimild styrkurinn byggist og hvaða skilyrði, styrkhlutföll og hámarksfjárhæðir eigi við. Stærri orkuskipta- og innviðaverkefni geti tekið nokkur ár í undirbúningi og framkvæmd. Samtökin leggja því áherslu á að reglugerðin veiti slíkum verkefnum eðlilegan fyrirsjáanleika og að skýrt verði hvernig ákvæði hennar um eins árs og fjölára styrki eigi að vinna saman.

Loks þurfi að tryggja sjóðnum nægilega og fyrirsjáanlega fjármögnun. Samtökin telja eðlilegt að stjórnvöld horfi meðal annars til tekna af sölu losunarheimilda innan ETS-kerfis Evrópusambandsins. Tekjur ríkisins af losunartengdri gjaldtöku eigi að nýtast til orkuskipta, nýsköpunar og uppbyggingar umhverfisvænna lausna.

Lesa umsögnina í heild

Sjá málið í Samráðsgátt stjórnvalda