SAFL og SI styðja framlengingu búvörusamninga

Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) og Samtök iðnaðarins (SI) styðja áform stjórnvalda um að framlengja núgildandi búvörusamninga til loka árs 2027. Samtökin telja framlenginguna eðlilegt skref sem gefi stjórnvöldum og fulltrúum landbúnaðarins nauðsynlegt svigrúm til að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir starfsumhverfi og stuðningskerfi greinarinnar.

Í sameiginlegri umsögn SAFL og SI kemur fram að framlengingin dragi úr óvissu fyrir innlenda matvælaframleiðslu á meðan unnið er að nýjum samningum. Samtökin leggja jafnframt áherslu á að stöðugleiki og fyrirsjáanleiki ríki í starfsumhverfi landbúnaðarins og að ekki verði ráðist í stórvægilegar eða íþyngjandi breytingar á tímabilinu.

Umsögnina má lesa með því að smella hér.