Matvælaverð þarf að ræða í samhengi

Matvælaverð á Íslandi er hátt í krónum talið og skiljanlegt að heimili finni fyrir því í daglegum útgjöldum. Krónutalan segir þó ekki ein og sér alla söguna.

Þegar horft er til þess hve stór hluti útgjalda heimila fer í mat og óáfenga drykki kemur í ljós að staðan hér á landi er sambærileg við hin Norðurlöndin. Samkvæmt samanburði Eurostat fer 12,9% af útgjöldum heimila á Íslandi í mat og óáfenga drykki, sem er undir meðaltali Evrópusambandsins sem er 13,2%.

Umræða um matvælaverð þarf að taka mið af heildarmyndinni - verði, tekjum, kaupmætti og útgjöldum heimila.

Samtök fyrirtækja í landbúnaði hvetja til þess að umræða um matvælaverð fari fram á málefnalegum grunni og byggist á gögnum.