Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli

Nýleg stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands, um 25 punkta, undirstrikar að verðbólguvandinn er enn viðvarandi. Róður heimila og fyrirtækja þyngist, hægst hefur á efnahagsumsvifum og atvinnuleysi hefur aukist. Við erum komin í marglaga vanda sem ljóst er að ekki verður unnið bug á öðruvísi en með samstilltu átaki stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og annara hagsmunaaðila með það að markmiði að ná niður vöxtum og verðbólgu með markvissum aðgerðum. 

Svíar lækka VSK

Sé litið til hinna Norðurlandanna má sjá að víða eru stjórnvöld að ráðast í aðgerðir til að bregðast við viðvarandi efnahagslægð, meðal annars með tímabundinni lækkun á virðisaukaskatti (VSK) á matvæli. Þannig hafa sænsk stjórnvöld tekið ákvörðun um að lækka VSK á matvæli úr 12% í 6% frá apríl 2026 til loka árs 2027, ásamt því að lækka eldsneytisgjöld. Með því er verið að grípa beint inn í kostnaðargrunn heimila og fyrirtækja, með það að markmiði að draga úr verðbólgu og styðja við efnahagslegan stöðugleika.

Í Danmörku hefur einnig verið rætt um svipaðar leiðir, þ.e. að nýta skattkerfið til að bregðast við hækkandi framfærslukostnaði. Þar eiga nú 30% landsmanna rétt á árlegri matarávísun sem hugsuð er sem mótframlag ríkisins vegna hækkandi vöruverðs. Þar virðist hafa myndast þverpólitísk samstaða um að gera breytingar á VSK-kerfi á matvæli, en rætt er um hvort lækka skuli VSK á allri matvöru eða fella VSK alveg niður á grænmeti og ávöxtum. Þá hafa sambærilegar hugmyndir verið til umræðu í Noregi, þ.e. að lækka VSK á matvæli sem lið í því að skapa efnahagslegan stöðugleika.  

Stuðlað að stöðugleika

Aukna verðbólgu má að nokkru leyti rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Það er því í hendi og á ábyrgð stjórnvalda að hafa áhrif til lækkunar á verðbólgu og vöxtum og hér er ein leið fyrir stjórnvöld til að leggja sitt af mörkum í þeirri vegferð. Þessi aðferð mun vissulega hafa áhrif á ríkissjóð og kalla á aukið aðhald útgjalda á móti. Verkefnið sem við stöndum frammi fyrir er krefjandi, ástandið kallar á aðgerðir og þær verða því miður ekki allar sársaukalausar. En þessi leið er til þess fallin að hafa bein áhrif á fjárhag heimila og létta róðurinn.

Á Alþingi liggur nú fyrir þingsályktunartillaga um endurskoðun á álögum á matvæli, þar á meðal með tímabundinni lækkun VSK. Því er ljóst að slíkar leiðir eru komnar á radar íslenskra stjórnmálamanna. Tímabundin lækkun VSK á matvælum getur bæði létt undir með heimilum og haft áhrif til lækkunar verðbólgu. Slík aðgerð þyrfti þó alltaf að vera skýrt afmörkuð í tíma og unnin í samráði við atvinnulífið, þannig að tryggt sé að ávinningurinn skili sér til neytenda og inn í hagkerfið í heild. Auk þess að bæta hag heimila getur lækkun VSK á matvæli einnig stuðlað að auknum stöðugleika á vinnumarkaði.

Ef markmiðið er að ná tökum á verðbólgu, styrkja kaupmátt og stuðla að stöðugleika í efnahagslífinu,  þá er tímabundin lækkun VSK á matvæli skynsamleg aðgerð, bæði fyrir heimili og atvinnulíf.

Höfundur er Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 25. mars 2026