Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt til að sameina Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Einnig er lagt til að ákveðnir eftirlitsþættir sem nú eru hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga verði færðir undir hina nýju stofnun. Samkvæmt ráðuneytinu er markmið breytinganna að auka skilvirkni og gagnsæi í þjónustu við atvinnulífið og aðra hagaðila og að reknar verði öflugar og hagkvæmar starfsstöðvar um land allt. Kemur fram að áformin eru í samræmi við áherslur sem birtast í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um einföldun stjórnsýslu, hagræðingu í ríkisrekstri og aukna skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera.
„Það vekur athygli að þrátt fyrir markmið um aukna skilvirkni og einföldun, og meintar áherslur á hagræðingu í rekstri, er hvorki gert ráð fyrir lækkun á útgjöldum né tekjum ríkisins við sameininguna. Ekki er því gert ráð fyrir að breytingin skili sér í hagræðingu, hvorki hjá hinu opinbera né eftirlitsþegum.“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.
Þar vísar hún í áformaskjöl sem nú eru til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda en þar kemur fram að sú hagræðing sem kann að hljótast af sameiningunni verði nýtt í verkefni nýrrar stofnunar.
„Það er furðuleg ákvörðun að gefa það út, án þess að möguleg hagræðing hafi verið metin, að hún verði eftir innan nýrrar sameinaðrar stofnunar í stað þess að nýta svigrúmið til að lækka bæði útgjöld ríkissjóðs og eftirlitskostnað.“ segir Margrét.
Samtök fyrirtækja í landbúnaði styðja við markmið stjórnvalda um að auka skilvirkni og gagnsæi í þjónustu við atvinnulífið og aðra hagaðila. Sameining stofnana getur sannarlega leitt af sér skilvirkari stjórnsýslu, samhæfðari þjónustu og lægri stjórnsýslukostnað. „En það er mikilvægt er að gert sé grein fyrir því hvað sparast, hvenær, hvernig og hvaða áhrif það hefur á veitta þjónustu. Ellegar er hætta á að sameiningin feli eingöngu í sér eftirfylgni pólitískrar hugmyndafræði en ekki raunverulega einföldun eða hagræðingu.“ segir Margrét að lokum.


