Óraunhæft að taka upp reglugerð um umbúðir og umbúðaúrgang án aðlögunar

Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, segir í Viðskiptablaðinu að reglugerð Evrópusambandsins um umbúðir og umbúðaúrgang (PPWR - Packaging and Packaging Waste Regulation) myndi koma sér illa fyrir íslenskan landbúnað. PPWR bannar m.a. einnota plastumbúðir fyrir ferska ávexti og grænmeti í undir 1,5 kg pakkningum og ljóst að slíkt myndi hafa talsverð áhrif hér á landi. Þá verði einnig að hafa í huga að umbúðum sé ætlað að vernda vöruna og auka geymsluþol.

„Þá verður ekki séð að innleiðing PPWR hérlendis muni ná fram þeim jákvæðu umhverfis- og loftslagsmarkmiðum sem lagt er upp með á meginlandi Evrópu. Í ljósi smæðar hagkerfisins, þess hve markaðurinn er dreifður og landfræðilegrar einangrunar Íslands frá öðrum markaðssvæðum er í raun líklegra að afleiðingarnar hér yrðu skaðlegar þeim umhverfis- og loftslagsmarkmiðum sem PPWR stefnir að,“ segir Margrét. Ekki verði hægt að nýta aðföng eða innviði nágrannaríkja eins og á meginlandi Evrópu og því myndi innleiðing PPWR í óbreyttri mynd leiða til sóunar í fjárfestingum.

Margrét segir meðal annars að séríslenskar aðstæður geri upptöku PPWR reglugerðarinnar í raun óraunhæfa án aðlögunar. Ísland sé lítið og dreifbýlt hagkerfi með fáum neytendum og miklum flutningsfjarlægðum, sem útiloka þá stærðarhagkvæmni sem reglugerðin er í hugsuð út frá.