"Svona við fyrstu sýn er alveg ljóst að það er mjög margt óútfært í þessum drögum. Þannig að áhrifin sem þetta mun hafa eru þeim mun óljósari,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði í frétt ríkisútvarpsins um drög að frumvarpi um breytingar á búvörulögum sem atvinnuvegaráðherra hefur nú birt í samráðsgátt stjórnvalda . Þá segir Margrét að við fyrstu sýn sé enn mjög margt óútfært í drögunum þannig að áhrifin sem tillögurnar gætu haft séu þeim mun óljósari.
Þá segir Margrét að þarna sé verið að gjörbreyta landbúnaðarkerfinu án samráðs við greinina. "Þarna er verið að fara gegn því kerfi sem hefur meðal annars þekkst í mjólkurframleiðslunni í tuttugu ár og hefur lagt grunn að mjólkurframleiðslu eins og við þekkjum hana í dag," segir Margrét.
"Og að kemur mjög á óvart. Það hefur ekki verið ákall um slíkt og við erum í rauninni að sjá þetta dúkka upp án nokkurrar umræðu við þá sem starfa í og við atvinnugreinina.“
Lagt til að draga úr undanþágum afurðarstöðva frá samkeppnislögum
Drög að frumvarpinu voru sett í samráðsgátt stjórnvalda síðastliðinn föstudag. Samkvæmt þeim er stefnt að því að draga mjög úr undanþágu afurðarstöðva frá samkeppnislögum, en undanþágan mun aðeins ná til fyrirtækja í meirihlutaeigu og undir stjórn bænda. Breytingar voru gerðar á búvörulögum í fyrra þegar kjötafurðarstöðvum í landbúnaði voru veittar undanþágur frá ákvæðum samkeppnislaga, með það að markmiði að ná fram hagræðingu í greininni til hagsbóta fyrir bændur og neytendur. Í frumvarpsdrögunum er einnig lagt til að ákvæði um heimild afurðarstöðva í mjólkuriðnaði verði breytt.
„Þetta mun auðvitað hafa þær afleiðingar að þeir möguleikar til hagræðingar sem hefur verið unnið að og óskað eftir í fjölmörg ár, til að mynda hvað varðar slátrun á lambi og nauti, það virðist vera farið út aftur og undanþágur frá samkeppnisreglum munu einungis aftur eiga við hvíta kjötið,“ segir Margrèt.
„Það er svínakjöt og alifuglaframleiðslu. Sem er auðvitað bagalegt, það var tilgangurinn með allri þessari vinnu frá upphafi að reyna að ná fram hagræðingu í þeim hluta landbúnaðarframleiðslunnar.“
Verið sé að leggja til breytingar á grundvallaratriðum í landbúnaðarkerfinu.
„Þannig að það eru gríðarlegir hagsmunir fyrir landbúnaðinn þarna undir.“


