„Það er margt líkt með þessu frumvarpi og því frumvarpi sem Svandís Svavarsdóttir lagði fram á sínum tíma. En það var alveg ljóst að sú útgáfa þess frumvarps var gölluð og hefði aldrei náð markmiðum sínum um hagræðingu í slátrun og vinnslu í sauðfjár og stórgripaslátrun án breytinga. Af þeim sökum brýndi Svandís, þáverandi matvælaráðherra, þingið til þess að gera breytingar. Það vekur því furðu að ráðuneytið skuli enn einu sinni leggja til útfærslu sem er ljóst að tekur að takmörkuðu leyti til sauðfjár og stórgripaslátrunar." segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði í viðtali við Bændablaðið um drög að frumvarpi um breytingar á búvörulögum sem atvinnuvegaráðherra hefur nú birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þá segir hún ekki hlaupið að því að breyta eignarhaldi fyrirtækja sísvona til að uppfylla skilgreiningar um framleiðendafélag þannig að undanþáguákvæði gildi fyrir þau í mögulegum hagræðingaraðgerðum.
„Hlutur bænda var í fyrri tíð meiri í mörgum fyrirtækjum en með aukinni fjárþörf vegna erfiðleika í rekstri hefur þurft að fá aðra aðila inn í gegnum tíðina. Fyrirtækin eru, þrátt fyrir mismunandi eignarhald, úrvinnslufyrirtæki bænda og starfa sem slík af miklum metnaði." segir Margrét.
„En það er í raun alveg ótækt að allar lykilskilgreiningar eru enn óútfærðar sem gerir okkur erfiðara fyrir að taka afstöðu til einstakra þátta frumvarpsins. Hvaða forsendur verða að baki mati Samkeppniseftirlitsins á yfirráðum?“ spyr hún. „Við höfum áður séð mat frá eftirlitinu á þessum þáttum sem að okkar mati ganga ekki upp. Þá vakna líka spurningar um hverjar séu skilgreiningarnar á frumframleiðanda og framleiðendafélagi. Þetta á allt saman að útfæra í reglugerðum síðar meir. Hættan við slíkt er að þar er verið að færa ákvarðanavald um útfærslur til framkvæmdavaldsins frá Alþingi þar sem það ætti sannarlega heima,“ segir Margrét Gísladóttir.
Þá bendir hún á að með frumvarpinu sé verið að beita Samkeppniseftirlitinu heimild til að fella úr gildi samninga eða samstarf eða kerfjast breytinga á þeim, telji eftirlitið þess þurfa. Jafnvel þó slíkar ákvarðanir væru þvert kgegn markmiðum laganna. „Aftur legg ég áherslu á að það er svo margt óútfært og mörgum spurningum ósvarað. Eins og frumvarpið lítur út núna þá virðist vera ansi mikið af lausum endum.“


