Boða breytta tollflokkun á pizzaosti

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tilkynnt Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) um áform um breytta tollflokkun á osti með viðbættri jurtaolíu, sem gjarnan hefur verið vísað til sem pizzaosts í fyrri umfjöllun um málið. Er það gert í svarbréfi ráðuneytisins til ESA við formlegu áminningarbréfi sem stofnunin sendi íslenskum stjórnvöldum í apríl þar sem ESA taldi Ísland ekki uppfylla skyldur sínar samkvæmt EES-samningnum.

Í svari fjármálaráðuneytisins andmælir ráðuneytið réttilega þeirri niðurstöðu ESA að Ísland hafi ekki uppfyllt skyldur sínar og mótmælir rangfærslum sem þar komu fram. Athygli vekur að ráðuneytið kýs í niðurlagi bréfsins að tilkynna ESA um áform um breytta tollflokkun vörunnar í samræmi við álit WCO, þó ekki verði séð að til þess standi sérstök nauðsyn.

Breytt tollflokkun felur ekki í sér afnám tolla

Samtök fyrirtækja í landbúnaði gera ráð fyrir að boðuð breyting á tollflokkun feli þó ekki í sér afnám tolla á vöruna, enda standa engar skuldbindingar til þess. Er það í samræmi við fyrri niðurstöðu fjármálaráðherra um að falla frá áformum um að breyta tollflokkun umræddrar vöru fyrr á þessu ári, í kjölfar mikilla mótmæla bænda og samtaka landbúnaðar- og matvælaframleiðenda þar sem sýnt var fram á þau verulegu neikvæðu áhrif sem slík breyting hefði á innlenda matvælaframleiðslu, samkeppnisstöðu íslenskra bænda og stöðugleika í greininni.

Tekið skal þó fram að frumvarp þess efnis er ekki á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir veturinn.

Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL, segir mikilvægt að íslensk stjórnvöld gæti þess að boðaðar breytingar á tollskránni, þegar að þeim kemur, grafi ekki undan samkeppnishæfni íslenskra bænda og framleiðenda. “Boðuð breyting felur ekki í sér afnám tolla. Það er vel hægt að ákvarða toll á ný tollnúmer og við gerum ráð fyrir að svo verði gert í þessu tilfelli,” segir Margrét. “Það er því alveg ljóst að vel er hægt að gæta áfram að samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu sé pólitískur vilji fyrir því. Við höfum ekki fundið annað frá stjórnvöldum en að svo sé.”