Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, ræddi nýlega um búvörulögin í Morgunútvarpinu á Rás 2. Í viðtalinu lagði hún áherslu á mikilvægi laganna fyrir íslenskan landbúnað og afstöðu samtakanna til niðurstöðu Hæstaréttar. Þá brást hún einnig við ummælum forstjóra Samkeppniseftirlitsins sem hefur haldið því fram að logið hafi verið að bændum og almenningi í málinu.
Ummæli forstjóra Samkeppniseftirlitsins ekki sæmandi
"Markmiðið var alltaf að hagræða í slátrun og vinnslu. Það hefur alltaf verið markmiðið og það kom fram í greinargerð upphaflegs frumvarps. Matvælaráðherra sjálf sagði í pontu Alþingis að nú skal þingið sýna hvað í því býr og gera þær breytingar sem þau telja mikilvægar til þess að þessi markmið náist í gegn. Og ég verð að fá að segja að þau ummæli sem voru látin hér falla í gær eru ekki sæmandi forstjóra opinberrar stofnunar og hvað þá stofnunar sem fer með eftirlit og úrvinnslu mála. Þetta eru grafalvarlegar ásakanir sem komu þarna fram og ég trúi ekki öðru en að menn setji þá spurningamerki við hlutleysi stofnunarinnar til þess að fjalla um þessi mál í framhaldinu." segir Margrét.
Hæstiréttur hefur staðfest að búvörulögin, sem samþykkt voru á síðasta kjörtímabili, standa. Þetta þýðir að kjötafurðastöðvar eru undanskildar ákveðnum ákvæðum samkeppnislaga. Margrét benti á að þessi undanþága sé mikilvæg til að ná fram nauðsynlegri hagræðingu í greininni, til hagsbóta fyrir neytendur og bændur.
Réttast að draga núverandi frumvarp atvinnuvegaráðherra til baka
Aðspurð um stöðu þess frumvarps sem nú er til umræðu á þinginu og snýr að því að taka umræddar breytingar á búvörulögum til baka segir Margrét: "Við verðum að fá að vita hvaða breytingar það eru sem ríkisstjórnin vill gera, hvað er það sem þau vilja ekki hafa í núverandi lögum og er þá ekki best að breyta því í staðinn fyrir að kippa einhverju úr sambandi og lofa að það komi svo eitthvað seinna. Því það skapar gríðarlega óvissu fyrir alla virðiskeðjuna. [...] Þetta er orðið algert jójó fyrir fyritækin og bændur að fylgjast með þessu.
Hlusta má á viðtalið í heild sinni á vef RÚV eða með því að smella hér


