Fæðuöryggi til framtíðar var til umræðu á málþingi sem haldið var í Þjóðminjasafni Íslands fimmtudaginn20. febrúar síðastliðinn á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar var fjallað um stöðu fæðuöryggis hér á landi og hvaða áskoranir og tækifæri blasa við í ljósi innlendrar framleiðslugetu, neyðarbirgða, áreiðanleika aðfangakeðja og virðiskeðja, áhættusviðsmynda í ljósi þróunar á alþjóðasviðinu og leiða til að styrkja fæðuöryggi til framtíðar.
Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, tók þátt í panelumræðum að loknum erindum. Sköpuðust líflegar umræður um stöðu fæðuöryggis og hvað væri hægt að gera betur. Beindi Margrét spjótum sínum m.a. að pólitískri óvissu en sama dag átti að mæla fyrir frumvarpi á Alþingi sem tekur til baka breytingar á búvörulögum sem gefur úrvinnslufyrirtækjum bænda möguleika á hagræðingu. Samhliða hefur verið boðað að gerðar verði breytingar á lögum næsta haust sem á aftur að veita heimildir til hagræðingar. Tók Margrét fram að slíkar u-beygjur hver á fætur annarri væru óboðlegar og fælu í sér fullkomna óvissu fyrir bændur og fyrirtæki þeirra.
Kom hún einnig inn á matvælafullveldi og mikilvægi þess að passa upp á og búa þannig um hnútana að Ísland tryggi yfirráð yfir sínum land- og hafsvæðum þar sem matvælaframleiðsla Íslendinga á sér stað. Lítið sé í lögum landsins sem kemur í veg fyrir uppkaup á landbúnaðarlandi og úr því þurfi að bæta.


