Innfluttur pizzaostur skal tollflokkast sem ostur

Niðurstaða fékkst í dag, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, í máli sem varðar hvort innfluttur pizzaostur skuli flokkast í 4. kafla tollskrár og þar með bera tolla, eða í 21. kafla og bera ekki toll. Er þetta í annað sinn sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafnar kröfu Danól um að ógilda bindandi álit Skattsins um tollflokkun á pizzaosti blönduðum jurtafitu.

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í dag, er niðurstaðan sú að umrædd vara skuli flokkast líkt og annar rifinn ostur og bera þannig toll líkt og aðrir innfluttir ostar. Lögmaður Danóls segir að við blasi að dómnum verði áfrýjað til Landsréttar.

Áform um breytta tollflokkun koma á óvart

Daði Már Kristó­fers­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda áform um lagasetningu sem breytir tollflokkun pizzaostsins á þann veg að hann skuli færast í tollflokk án tolla. Kemur það nokkuð á óvart þar sem íslenska ríkið er skuldbundið að virða sín eigin álit um tollflokkun en ekki álit alþjóðastofnana, en árið 2023 var niðurstaða svokallaðrar HS nefndar innan Alþjóðatollastofnunarinnar á skjön við niðurstöðu íslenskra dómstóla. Þegar svo ber undir skulu ríki tilkynna Alþjóðatollastofnuninni að þeim sé ekki kleift að fara eftir áliti stofnunarinnar, t.d. ef dómstólar viðkomandi ríkis hafa komist að annarri niðurstöðu. Í mars 2024 var slík tilkynning send frá íslenskum stjórnvöldum til Alþjóðatollastofnunarinnar.