Fjölmörg samtök landbúnaðar- og matvælaframleiðenda á Íslandi mótmæla harðlega áformum fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á tollflokkun mjólkurafurða eins og þær eru kynntar í áformaskjali í samráðsgátt stjórnvalda. Ef af þeim verður telja samtökin að breytingarnar muni hafa veruleg neikvæð áhrif á innlenda matvælaframleiðslu, samkeppnisstöðu íslenskra bænda og stöðugleika í greininni.
Í nýlegu bréfi samtakanna til fjármála- og efnahagsráðherra er bent á að verði breytingarnar að veruleika muni mjólkurafurðir, sem nú bera tolla, verða tollfrjálsar. Það gæti leitt til stórfellds tollfrjáls innflutnings á ostum sem innihalda jurtafitu í beinni samkeppni við íslenskan landbúnað og veikja þannig samkeppnisstöðu greinarinnar.
„Þetta mál er með miklum ólíkindum. Á öllum dómsstigum íslenska réttarkerfisins, nú síðast í dag, er niðurstaðan einföld; mjólkurostur getur aldrei flokkast sem jurtaostur,“ segir Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands. „Ekkert frekar en að jarðarberjajógúrt getur aldrei tollflokkast sem jarðarber. Með þessum málatilbúnaði er ekki verið að gæta almannahagsmuna Íslendinga heldur þröngra sérhagsmuna örfárra heildsala sem láta sig rekstrarskilyrði landbúnaðarins, og um leið fæðuöryggis íslenskrar þjóðar, engu varða.“
Í bréfinu er jafnframt bent á að íslenska ríkið sé ekki skuldbundið til að fylgja niðurstöðu Alþjóðatollastofnunarinnar (WCO) um þessa tollflokkun, enda hafi íslenskir dómstólar þegar kveðið á um að þessar vörur skuli tollflokkast sem rifinn ostur. Þá vilja undirrituð koma því á framfæri að fullyrðingar um að Ísland hafi verið sett á viðskiptahindranalistann vegna ólögmætrar tollflokkunar eru settar fram með afar villandi hætti. Skilgreining ESB á viðskiptahindrunum er pólitískt mótuð að teknu tilliti til hagsmuna þess og hefur ekki lagalega þýðingu gagnvart EES-samningnum. Þá hefur Noregur verið á umræddum lista í yfir 12 ár.
„Þetta er enn eitt dæmið um hvernig verið er að veikja samkeppnisstöðu ungra bænda og draga úr hvata til nýliðunar í greininni,“ segir Steinþór Logi Arnarson, formaður Samtaka ungra bænda. „Þegar stjórnvöld tala um mikilvægi fæðuöryggis og sjálfbærni en taka svo ákvarðanir sem grafa undan íslenskri matvælaframleiðslu, þá vakna upp spurningar um stefnu þeirra í landbúnaðarmálum.“
Samtök smáframleiðenda matvæla og Beint frá býli taka í sama streng og vara við því að breytingin gæti skapað hættulegt fordæmi fyrir aðrar landbúnaðarafurðir sem njóta tollverndar. „Ef stjórnvöld ætla sér að opna á tollfrjálsan innflutning á þessum ostum, hver verða þá næstu skref?“ spyr Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla og Beint frá býli. „Breytingin gæti ógnað fæðuöryggi þjóðarinnar þar sem innlend landbúnaðarframleiðsla mun óhjákvæmilega dragast saman sem hefði jafnframt víðtæk áhrif á byggðafestu og atvinnusköpun um land allt.“
Í bréfinu lýsa samtökin sameiginlega yfir fullkominni andstöðu við áformaða breytingu tollflokkunar með tilheyrandi skorti á fyrirsjáanleika fyrir landbúnaðinn. Leggja þau áherslu á að stjórnvöld tryggi fremur að íslensk lög og dómstólar fái að ráða för í þessum málum. Breytingarnar eru ekki aðeins í andstöðu við niðurstöðu íslenskra dómstóla heldur einnig við opinbera matvælastefnu stjórnvalda til ársins 2040, sem samin var í samráði við atvinnulífið og hagaðila og kveður á um nauðsyn þess að efla innlenda matvælaframleiðslu og tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar.
Undir bréfið rita forsvarsmenn Bændasamtaka Íslands, Beint frá býli, Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, Samtaka smáframleiðenda matvæla og Samtaka ungra bænda.


