Nýlega voru birt áform um breytingar á tollalögum í samráðsgátt stjórnvalda. Með áformunum var upprunalega meðal annars lagt til að breyta tollflokkun osts með viðbættri jurtafitu, það er að flokka slíkar vörur sem jurtaost (sem ber ekki toll) í stað þess að flokka vöruna líkt og annan rifinn ost (sem ber toll). Þann 21. febrúar greindi atvinnuvegaráðherra þó frá því að fjármálaráðherra hefði ákveðið að "afturkalla áform um að breyta tollflokkun jurtaosts til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar að sinni og hefja skoðun málsins og eiga samráð við hagaðila með það að markmiði að geta sameinað alþjóðlegar skuldbindingar, hagsmuni bænda og hagsmuni neytenda í þessum máli."
Áformin ná þó til fleiri atriða en tollflokkunar mjólkurvara með viðbættri jurtafitu. Þar er einnig lagt til að fella úr gildi ákvæði í tollalögum er varða verðjöfnunargjöld. Til skýringa þá eru verðjöfnunargjöld gjöld sem lögð eru á unnar matvörur sem innihalda landbúnaðarhráefni, t.d. súkkulaði eða frosnar pizzur. Þá er greitt gjald fyrir þann hluta vörunnar sem flokkast sem landbúnaðarvara. Þetta á meðal annars við í samningum milli Íslands og ESB; verðjöfnunargjöld eru lögð á margar vörur við innflutning til ESB frá Íslandi þótt tollar hafi verið felldir niður. Mikilvægt er að halda því til haga að verðjöfnunargjöld eru að sjálfsögðu ígildi tolla í viðskiptum með þessar vörur þar sem niðurstaðan er sú sama – innflytjandi þarf að greiða verðjöfnunargjald við innflutning vörunnar.
Í áformunum er lagt til að fella út heimild íslenskra stjórnvalda til að leggja á verðjöfnunargjöld. Þó svo Ísland sé eina landið innan EES sem kýs að leggja ekki verðjöfnunargjöld á unnin matvæli, þá er engin þörf á að fella heimild til þess að gera slíkt úr lögum. Samtök fyrirtækja í landbúnaði leggjast því alfarið gegn þeim áformum í umsögn sinni um málið.


