Morgunfundur um landbúnaðarmál

Samtök fyrirtækja í landbúnaði og Bændasamtök Íslands efna til morgunfundaraðar um landbúnaðarmál.

Annar morgunfundurinn verður haldinn 22. febrúar nk. kl. 9-10 í húsakynnum Mjólkursamsölunnar að Bitruhálsi 1 í Reykjavík. Þá mun Ragnar Árnason, professor emiritus, fjalla um opinberan stuðning við landbúnað - skilvirkt fyrirkomulag.

Fundirnir eru hugsaðir sem umræðuvettvangur fyrir hvers konar málefni er snerta landbúnaðinn. Fundirnir verða með óformlegu sniði þar sem fólki gefst tækifæri til að kynna sínar athuganir og hugmyndir og eftir að framsögu lýkur gefst tími til fyrirspurna og almennra umræðna.

Morgunfundirnir eru opnir öllum.

Áhugasamir geta skráð sig á póstlista og fengið upplýsingar um komandi fundi með því að senda póst á safl@safl.is